Nei, ég er ekki full eins og við má búast þegar maður syngur slagara eins og þessa en ég held að það sé einhver misskilningur í gangi. Það er búið að vera haustveður hérna síðan um helgina og ég sem hélt að það væri að koma vor. Það er samt dálítið gaman stundum í rigningunni t.d. í fótbolta þegar maður rennir sér og þegar maður er að skokka því það er bara einhvern vegin auðveldara að hlaupa í rigningunni. Þetta er líka yfirleitt ekki eins og heima þegar það er brjálað rok og maður er að berjast í gegnum vindinn og rigninguna heldur er bara logn og rigning. En nú er komið nóg.
Ég og Ragna vorum að dj-ast til klukkan 3 í nótt því að við tókum að okkur að sjá um tónlistina fyrir "festina" á morgun. Þar er helst um að ræða tónlist sem ætti að fá fólk til þess að vilja dilla á sér rassinum eins og það hafi aldrei gert annað.
Á morgun byrjar svo dagurinn með æfingaleik við Gødvad og síðan verður djammað annað kvöld og sem betur fer þurfum ég og Ragna ekki að taka þátt í æfingaleiknum á sunnudaginn því ég býst ekki við góðri heilsu þann daginn.
Ég heiti Halla Ólafsdóttir og er fædd 24. desember 1984. Núna bý ég í Árósum í Danmörku þar sem ég stunda nám við Handelshøjskolen i Århus og læri frönsku og evrópsk fræði.