Ohhh...ég ætlaði að skrifa þær gleðifréttir að snjórinn væri farinn og vorið væri að koma en í þeim skrifuðu orðum lít ég út um gluggann og það er að snjóa. En ég held að vorið sé alveg að koma því inn á milli kemur rosa gott veður og ég var meira að segja búin að hengja út á snúru áðan en svona hálftíma síðar þurfti ég að hlaupa út og ná í þær því það var byrjað að snjóa. Líf mitt þessa dagana einkennist aðallega að heimilisstörfum þ.e.a.s. þrifum, eldamennsku, bakstri og strauji, Rögnu til mikillar ánægju en mér er alveg farið að langa að gera eitthvað annað. Fer á morgun og reyni að fylgja eftir atvinnuumsóknum mínum og snúa upp á handlegginn á einhverjum.
Það er vægast sagt yndislegt að vera kominn með netið aftur og geta haft samband við umheiminn. Nú fær maður líka allar nýjustu fréttirnar beint í æð og það er ekki leiðinlegt. Við systur erum að spá í að vera á Djúpavogi í sumar enda líka alveg tími til kominn því það eru þrjú ár síðan ég var síðast á Djúpavogi og ég hlakka ekkert smá til ef af þessu verður.
Annars er voða lítið að frétta héðan. Um helgina förum við með liðinu okkar í æfingabúðir sem byrja annað kvöld með tveggja tíma æfingu á gervigrasinu síðan förum við til Gedved, sem er í um 20-25 mínútna fjarlægð frá Árósum, og þar verðum við um helgina. Síðan endar þetta með æfingaleik á sunnudaginn. Þetta á eflaust eftir að gera hópinn aðeins þéttari og þetta er líka góð tímasetning því næstu helgi er forårsfest eða eins konar árshátíð karla- og kvennaliðsins og þá verður aldeilis slett úr klaufunum.
Hef ekki meira að segja í bili en eigið góða helgi og þeir sem skoða bloggið mitt mega vera duglegri að kommenta svo ég viti hver markhópurinn minn er :)
Ég heiti Halla Ólafsdóttir og er fædd 24. desember 1984. Núna bý ég í Árósum í Danmörku þar sem ég stunda nám við Handelshøjskolen i Århus og læri frönsku og evrópsk fræði.