Ef að þið hafið lent í því síðustu daga að finnast eins og þið hafið kannski séð mig í Kringlunni t.d. og hugsað "nei, það getur ekki verið" þá vildi ég bara láta vita að ég er komin til Íslands og það lítur ekki út fyrir að ég fari út aftur fyrr en í haust, fyrir utan Rolling Stones tónleikana í júní, þannig að ég er með íslenska númerið mitt 898-8974 svo að vinir og vandamenn viti af því.
Annars var rosa gaman síðustu helgi. Á laugardaginn kepptum við leik við Gødved í ausandi rigningu og ég átti dauðafæri en klúðraði, helv... súrt, en við unnum leikinn 4-3 svo að við vorum mjög sáttar. Um kvöldið var svo árshátíðin mikla og það var geggjað stuð og mikið drukkið. Ég er búin að reyna að setja inn myndir af kvöldinu en það hefur gengið eitthvað illa.
Ég hef svo sem ekkert meira að segja en við förum austur á Djúpavog á morgun og verðum yfir páska þannig að vonandi sér maður sem flesta.
Ég heiti Halla Ólafsdóttir og er fædd 24. desember 1984. Núna bý ég í Árósum í Danmörku þar sem ég stunda nám við Handelshøjskolen i Århus og læri frönsku og evrópsk fræði.