Það tók nú ekki við mikil sumarstemning þegar ég kom á Djúpavog. Búið að vera hávaðarok og skítakuldi. Ég vil ekki meina að þetta fylgi mér. En svei mér þá ef þetta er ekki að breytast.
Það er búið að fresta tónleikaferð Rolling Stones til 5. júlí því að Keith Richards er ekki alveg búinn að jafna sig eftir aðgerðina sem að hann fór í. Hvað eru menn á hans aldri að klifra uppí tré, maður spyr sig. Pabbi var samt með plan B því hann grunaði að það gæti komið til þess svo að í staðinn ætlum á tónleikana í London þann 20. ágúst, jíha!!
Við feðgin ætlum samt að fara til Danmerkur 8. júní þrátt fyrir að tónleikarnir séu ekki. Við ætlum sennilega að leiga okkur bíl og keyra eitthvað um og auðvitað förum við til Árósa og pikkum Rögnu upp og hittum Regínu og Bjössa.
Ég vil óska pabba gamla og félögum hans í D-listanum í Þorlákshöfn til hamingju með glæsileg kosningaúrslit en þau náðu meirihluta í bæjarstjórn Ölfushrepps og D-listinn bætti við sig tæplega 15% síðan í síðustu kosningum. Ég er hrikalega stolt af pabba og það lítur út fyrir að fólk sé ánægt með hann og hans störf. Ég vil líka óska N-listanum á Djúpavogi til hamingju með sín úrslit.
Ég heiti Halla Ólafsdóttir og er fædd 24. desember 1984. Núna bý ég í Árósum í Danmörku þar sem ég stunda nám við Handelshøjskolen i Århus og læri frönsku og evrópsk fræði.