shíta múslimi og klerkur.... ég fékk símtal fyrir stuttu frá Regínu systur og hún sagði að það væri eins og ég og Ragna hefðum flutt á Suðurpólinn því að hún er ekkert búin að heyra í okkur síðan við fórum á Djúpavog. Ég þekkti ekki einu sinni röddina í henni til að byrja með svo að það er greinilega langt síðan að ég hef heyrt í henni greyinu. Sorrý... við erum ekki búnar að gleyma þér, elskan.
Fyndið samt að vera komin hingað og þvílík andstæða sem þetta er miðað við 300.000 manna borg eins og Árósar og samt hefur maður nóg að gera og hef gjörsamlega misst allt samband við umheiminn. En tíminn líður svo hratt að það er hálf svakalegt og það er plan hverja helgi fram yfir verslunarmannahelgi. Vonandi getum við svo séð Rolling Stones í London 22. ágúst, jibbí.
Annars hef ég lítið að segja og netsambandið er búið að vera mjög leiðinlegt og endist yfirleitt ekki nema 5 mínútur í senn svo að það er ekki skrítið að maður hafi gefist upp á þessu um tíma en ég á fullt af myndum sem á eftir að setja inn þar á meðal djamm á Olnboga sem endaði með því að allir fóru svartir heim, tvíræð merking.
Spennandi að vita hvenær maður bloggar næst en þangað til...... Adios mi amigos
Ég heiti Halla Ólafsdóttir og er fædd 24. desember 1984. Núna bý ég í Árósum í Danmörku þar sem ég stunda nám við Handelshøjskolen i Århus og læri frönsku og evrópsk fræði.