Ég vona að það séu ekki allir búnir að gefast upp á þessu bloggi en ég skil það alveg ef svo er.
Ég var að komast að því í gær að skólinn minn byrjar ekki fyrr en 1. febrúar þannig að ég og Ragna erum að spá í að skella okkur til Egyptalands þangað til. Við erum allavega að skoða þann möguleika. Það yrði náttúrulega geggjað gaman að vera búin að kynnast menningunni áður en maður fer að læra.
Það er rúm vika síðan ég kom til Árósa aftur og það var ekkert smá góð tilfinning að keyra inn í bæinn. Við vorum í London kvöldið áður að horfa á Rolling Stones á Twickenham Stadium og það var vægast sagt magnað. Þó svo að Mick, Keith, Charlie og Ron hafi litið út eins og maurar frá þeim stað sem við sátum þá var þetta eitthvað sem að maður á aldrei eftir að gleyma. Mick Jagger var eins og ofvirkur smástrákur á sviðinu, það sem maðurinn getur hlaupið og dansað. Ég hefði ekki lagt í þessar mjaðmahreyfingar hjá kallinum.
En annars er sumarið búið að vera svo geggjað skemmtilegt að það hálfa væri nóg og það var náttúrulega ekki þurr helgi. Þjóðhátíð stendur samt uppúr og það er sko alveg á hreinu að ég fer aftur á Þjóðhátíð í Eyjum. Á Þjóðhátíð ég fer.................
Er að vinna í að setja inn myndir eftir sumarið og það er sko slatti þannig að þetta á eftir að taka einhvern tíma en þetta kemur allt saman. Annars er festugen að byrja þannig að það er bara djamm, djamm og aftur djamm með nokkrum leikjum inn á milli svo að maður má ekki alveg missa sig í gleðinni en þangað til....
Ég heiti Halla Ólafsdóttir og er fædd 24. desember 1984. Núna bý ég í Árósum í Danmörku þar sem ég stunda nám við Handelshøjskolen i Århus og læri frönsku og evrópsk fræði.